|
|
23.09.2008 18:42:34 / Igga77
Jæja ég veit langt síðan ég hef bloggað, fer að skrifa almennilegt blogg þegar ég er í bloggstuði, mikið búið að gerast hjá mér, en það bíður í kannski nokkra daga  En ég féll víst fyrir þessu á blogginu hennar Þórunnar og skelli þessu þá hér inn  Þú veist að það er 2008 ef.....
1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.
2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.
3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á Facebook .
4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta bara
á takkann á sjónvarpinu.
6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.
7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.
8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.
9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.
10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.
11. Svo hlærðu af heimsku þinni.
12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu... Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.
Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!
En, ef þú bíður of lengi,mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... En vinir þínar munu missa af frábæri skemmtun
»
17.05.2008 22:47:43 / Igga77
Hæhæ Jæja, Garðar Freyr var að keppa á Asparmótinu í sundi í dag og gekk það frábærlega hjá honum :þ hann bætti sig um 35 sek í skriðsundinu sem er frábær árangur, en hann synti 50 metrana á 1,12 min sem er rosa gott fyrir hann, þið munið kannski sum ykkar hvað hann var vatnshræddur þegar hann var yngri, enda var hann svo lengi með sonduna og þá mátti plásturinn í andlitinu ekki blotna mikið og var því aldrei skvett mikið framan í hann  Í baksundinu var hann framan af í 3ja sæti en skall pínu í bakkann í fyrri ferðinni og var þá lengi að snúa við þannig að hann missti strákinn fram úr sér og lenti GF í 4 sæti, en var síðan gilt ógilt hjá honum því hann sneri sér á magann/hliðina í lokasundtakinu. En það var soldið skondið, en bæði á þessu móti og líka síðast (það er sami kynnirinn) þá var alltaf kallað: Garðar Freyr ÍRISON eða ÍRASON og núna þá hló þjálfarinn hans GF að þessu, en svo náði ég á míkrafónskallinum og sagði honum að ég héti Íris en ekki Íri eða Íra (er ég ekki nógu kvenleg eða??) og sagði að GF væri þá Írisarson og leiðrétt hann það þá í verðlaunaafhendingunni (já GF náði 2. sæti í skriðinu í sínum riðli :þ ) Eftir sundmótið skutlaði ég Kalla heim og fórum við krakkarnir til mömmu og hittum líka þar Bjarney og co, svo fór ég, krakkarnir og mamma í Hagkaup og keypti mamma afmælisgjöf handa stóru skvís, hjólaskó sem er búið að suða um í laaaangan tíma, svo var Kalli búinn að bjóða múttu og pabba í mat (og ekki var ég heima til að taka til í dag  ) og var það bara næs, á meðan við Kalli vorum að elda þá var mamma að brjóta saman þvottinn, þyrfti að fá hana oftar í heimsókn  Síðan fóru strákarnir heim með mömmu og Katrín Gréta er í næstu íbúð hjá vinkonu sinni, sem minnir mig á að ég þarf að fara að koma henni í rúmið  Á morgun er svo familíuafmælið hennar Katrínar og er ég að byrja að baka fyrir það, en ég ætla nú bara að hafa þetta þægilegt, ein Betty, ein marengs og svo ostar brauð og pestó og mamma ætlar að baka pönnsur, sem minnir mig á það , ég get ekki bakað pönnsur á span helluborðinu  ég sem geri oft pönnsur um helgar, sérstaklega fyrir Garðar Frey. En jæja, vildi bara aðeins láta vita af okkur hér á Holtinu  Kveðja Íris
»
13.05.2008 18:09:00 / Igga77
Hæhæ Ég vildi bara kasta á ykkur kveðju og láta vita að Katrín Gréta er 9 ára í dag, henni þykir voða gaman að fá kveðju í gestabókina sína inni á barnalandi http://barnaland.is/barn/25553Annars var áðan bekkjarafmælið hjá henni, öllum bekknum boðið eins og vanalega, ótrúlegt hvað maður er fljótari að taka til eftir afmæli heldur en fyrir  Á sunnudaginn brunuðum við norður á Skagaströnd í fermingarveislu til Telmu frænku, komum vel södd úr þeirri veislu  Við ætluðum að stoppa á ströndinni fram á mánudag en pabbi þurfti að vinna í gær þannig að við fórum bara fram og til baka á sama degi, Bryndís og Steini fóru líka með sína krakka  Svo er einhver fundur hjá pósthúsasviði ( með forstjóra Íslandspósts) núna klukkan 7 þannig að ég blogga aftur síðar  p.s. ég held áfram að hjóla í vinnuna, hjóla 4,4 km á dag og er heimleiðin errfiðari en hin  núna er ég ekki nema 17-20 mín að hjóla þessa kílómetra, svaka stolt af mér  Kveðja Igga
»
10.05.2008 09:17:26 / Igga77
Jæja, ég hef nú haft þau mörg tækifærin til að blogga en hef bara ekki gert  En fermingin hans Garðars Freys gekk alveg rosalega vel, fermingin sjálf var líka æðisleg, fólk talaði um að þetta hefði frekar verið eins og sunnudagaskólinn því það voru engin svona ræðuhöld, bara létt og skemmtilegt. Svo var veislan og var Garðar hrókur alls fagnaðar, bauð fólk velkomið og stóð sig eins og hetja í veislustjórn, framtíðar vinna fyrir hann kannski  En í veislunni var boðið uppá grillmat frá http://veisluthjonusta.is/ og voru hamborgarar, kjúklingabringur, lamba- og svínakjöt. En við mamma gerðum síðan eftirréttina ,rolo tertur, Betty með rice crispies ofaná,kransaköku,rice crispies krans og ég keypti líka ístertu frá Kjörís, allt saman voða gott, en Garðar Freyr borðaði 3 hamborgara ( já 3 þetta er ekki innsláttarvilla  ) og gat hann ekki borðað neitt í eftirrétt hann var svo saddur. Vikuna eftir fermingu var Garðar Freyr heima alla vikuna en hann fékk svo ljótann hósta og smá hita, ég fór með hann á vaktina og þurfti hann að fá astmapúst, sem hann hefur ekki þurft frá 3-5 ára minnir mig. En hann varð mikið hressari á föstudaginn og fór þá í Móaflöt. Um helgina var bekkjarpartý hjá Kalla, en við hittumst nokkur og grilluðum og drukkum,drukkum og jú drukkum aðeins meira, tölum ekkert um hvernig kvöldið endaði  en þetta var mjög gaman og er ætlunin að gera þetta aftur og þá heima hjá okkur næst, því jú við höfum ágætis pláss  Við Kalli keyptum okkur hjól í vikunni og er ég búinn ða vera ógó dugleg þó ég segji nú sjálf frá, en ég hjólaði frá Bæjarhrauninu og heim ( frá hjólabúðinni) en annars hefði ekki verið pláss fyrir Katrínu í bílnum, svo er ég búin að hjóla í og úr vinnu eftir það, og á miðvikudaginn þá fór ég líka til mömmu og fórum við í Body Vive tíma, mjög fínn tími, frekar rólegur en maður náði nú samt að svitna pínu  Svo í gær (og fyrradag) komu Katrín Gréta og Kalli hjólandi niðrí vinnu og í gær þá hjóluðum við líka út í Straumsvík og til baka, mikið djöfull var bakaleiðin erfið, það var mótvindur og smá rigning, enda gat Katrín ekki hjólað alla leiðina til baka, maður var gjörsamlega búinn eftir þetta  En já, svo er ég loksins byrjuð að minnka við mig vinnuna, hætti núna klukkan 15:00, svaka munur, nú ætla ég að fara að hugsa betur um mig líka, ég ætla að losa mig við þessi kg sem ég hef bætt á mig síðan ég byrjaði aftur á pósthúsinu, þau eru reyndar að yfirgefa mig nú þegar, hægt og rólega en þau fara öll fyrir rest  En jæja, heimilisverkin fara því miður ekkert frá manni og ætla ég að gera eitthvað pínu áður en ég fer í ræktina 10:30  Kveðja Íris
»
24.04.2008 07:20:37 / Igga77
dagurinn stóri er í dag, Garðar Freyr fermist og allt nokkuð klárt, það á bara eftir að sturta okkur foreldrana og klæða liðið í föt  Annars er þetta búið að vera pínu stress og veit ég ekki af hverju, gærdagurinn var frekar rólegur, fór í vinnuna í rúmlega klukkutíma og svo bara dunderí, setja á kökur, sækja myndir og skreyta salinn og tókst þetta bara mjög vel og er á ánægð hvað salurinn er flottur  En jæja, best að koma sér í sturtu og vekja krakkana  Iggan kveður
»
20.04.2008 12:03:13 / Igga77
en ég vaknaði í morgun um 7:30, strákarnir enn sofandi og Katrín hjá vinkonu sinni, en allavega þá vakna ég upp af vondum draumi, eins og þið eflaust vitið þá eru 4 dagar í fermingu og dreymdi mig um það. Fermingin sjálf gekk mjög vel og allt það, en svo komum við í salinn þar sem veislan er og veisluþjónustan ekki enn komin á staðinn, og ég spyr konuna sem sér um salinn hvort þeir hafi ekki komið en þá bara hafa þeir ekkert látið sjá sig  og gleymdi ég líka kertinu, gestabókinni og servíettunum heima  en bauð gestunum upp á kökurnar sem voru í eftirrétt og svo í mat heim daginn eftir, um 70 manns sirka  Annars er allt í góðu, ég á eftir að baka einn marengs hinir tilbúnir  En kallinn á líka afmæli í dag, orðinn 42 ára (sjitturinn  ) og ætlum við að bjóða mömmu og pabba í smá afmælismat í kvöld, grilla læri og hver veit nema maður hafi smá eftirrétt þó maður bæti honum nú bara á sig..... En það lítur allt út fyrir að ég geti loksins minkað við mig vinnuna um mánaðarmótin, Valdís skvís er hætt  en ég fæ gjaldkera frá R-8 og svo strákur sem er nýbyrjaður, vona að þetta gangi allt vel  En ég er ekki í miklu bloggstuði núna, þanni gað ég kveð í bili
»
10.04.2008 19:10:44 / Igga77
Jæja, á er komið að því... Ég gat sagt í gær að Garðar Freyr væri að verða 14 ára en ég ennþá þrítug  En allavega, Garðar Freyr er orðinn 14 ára og ég árinu eldri en þrítug, er alls ekki með aldurskomplexa, en viðurkenni samt ekki að vera á fertugsaldrinum, kannski í lagi þar sem kallinn minn er "lengi" búinn að vera á fimtugsaldrinum (2 ár  En við höldum familíuafmælið á sunnudaginn og er ég að spá í að hafa bekkjarafmælið á mánudaginn, þá er frí í leikskólanum hans Jóns Gunnars og er ég í fríi þá eftir hádegi. En það er búið að vera frekar mikið að gera undanfarið, Garðar Freyr fermist eftir 2 vikur og er búið að vera mikið stúss í kringum það. Svo á morgun fara krakkarnir í myndatöku, en auðvitað mest af Garðari en það verða líka teknar einhverjar af öllum saman  Við Kalli fórum á árshátíð Einstakra barna og þar vann Kalli leikhúsmiða og ég vann gistingu og morgunmat fyrir 2 á Hótel Geysi í Haukadal, hlakka ekkert smá til í ða nýta mér það  ætlum að fara eftir skóla hjá Kalla, en þá ætlar hann "bara" að vinna aðra hvora viku og svo í Álverinu í Straumsvík virka daga. Hvað meira.... það byrjaði strákur að vinna á pósthúsinu í dag, fínn gaur, en það gekk ekki með stelpuna sem byrjaði um daginn, fer ekkert nánar út í það . Jæja, strákarnir eru að detta inn með pizzu, en ég hefði nú viljað eitthvað annað en ég deili auðvitað þessum degi með gaurnum mínum og reyni að hafa hann sem bestan fyrir hann. KVeðja Íris afmælisskvís
»
16.03.2008 10:18:06 / Igga77
Jæja. Í gær átti mamma afmæli og við fórum í mat til þeirra í gærkveldi, svaka góður matur og svo ís í eftirrétt með heitri Snickerssósu jummy  En gærdagurinn var fínn, fórum í fermingarfræðslu með Garðari og svo var Einar bekkjarbróðir hans skírður í leiðinni og fengum við fínar veitingar á eftir  Eftir kirkjuna langaði Kalla að fara í bakarí og reyna að kaupa andabrauð, en í bakaríinu þá var mokað ofaní heilan höldupoka af rúnnstykkjum og fleiru góðgæti, ekki gömlu dúnmjúkt alveg  þannig að við fórum á tjörnina í Rvk og vorum heillengi að gefa  En já svo fór Garðar Freyr til Hauks bekkjarbróður síns með Guitar Hero eftir kirkjuna. Síðan fórum við til mömmu og pabba með ís í tilefni afmælisins  En undanfarið er búið að vera nóg að gera, frekar mikið um veikindi þá hjá Jóni Gunnari en hann var með hitavelling nær alla s.l. viku og rauk 1x upp í 39,6 mér leist nú ekkert á hann þá en hann var fljótur að hrista það niður  Nýlega eru búnir að byrja 3 nýjir starfsmenn hjá mér, 2 voru í 1 dag, 3ja byrjaði á föstudag, vona að hún endist  þá get ég farið að minnka við mig vinnuna  Það er mikið búið að gera grín að mér, hvort ég sé svo leiðinleg að starfsfólkið endist ekki nema daginn.... svo var líka einn kúnni sem spurði mig að því á föstudaginn.... ég tek þetta ekkert nærri mér, hann og konan hans gáfu mér konfekt fyirr jólin... ég er þá ekkert svo leiðinleg  En já, svo erum við Kalli búin að ákveða að flytja... já flytja til Danmerkur á næsta ári, Kalli ætlar í skóla og til að byrja með ætla ég að vera heimavinnandi í kannski hálft ár og sé svo hvort ég fari í skóla eða vinna  Jæja, ætla í ræktina eftir hálftíma, en ég hef ekki getað komist þangað nógu oft, ætla að reyna að vera dugleg á meðan kallinn er í páskafríi, væri nú næs að vera skólastelpa og fá svona frí  en hann ætlar að klára herbergið hennar Katrína í fríinu, fínt að nota þessa daga í það  Iggan kveður í dag, og verið nú dugleg að kommenta ef þið kíkið hér inn    
»
24.02.2008 20:21:20 / Igga77
Jájá, við hjónin fórum á Stjörnuhátíð Íslandspósts í gær, en þetta var 10 ára afmælishátíð póstsins og var þetta glæsilegt í alla staði, Laddi var veislustjóri, Garðar Thor Cortes tók nokkur lög, síðan kom Páll Óskar og hitaði upp salinn, og tókst það mjöög vel hjá honum, síðan var ball með Á móti sól, en Kalli fór að keyra eftir matinn en ég varð nú áfram og skemmti mér mjög vel, dansaði slatta og var bara heví gaman  svo þegar minn djammtími var búinn þá hringdi ég auðvitað bara í einka taxadriverinn minn sem sótti mig  Á heimleiðinni tók ég eftir því að ég hefði kannski sungið eins og 1 eða 2 lög (eða pínu fleiri) og var ég orðin svo hás að það var pínu fyndið  Ég hitti fullt af fólki sem ég þekki, enda búin að vera lengi í póstinum, og var líka gaman að því að einn yfirmaður kom til mín og sagði hvað það væri gott að fá mig aftur í póstinn og hvernig gengi ofl, gaman þegar fólk man eftir manni eftir að vera búin að vera í pásu í rúm 3 ár... Svo hitti ég líka Írenu frá Skagaströnd og vinkonu hennar (líka í póstinum, hvað annað) og þekkti hún mig frá því að við vorum víst saman í mömmuklúbb þegar Garðar var lítill, (mömmuklúbbur = djammklúbbur) En um síðustu helgi var ég smá slöpp í hálsinum en spáði ekkert frekar í það, en svo á mánudaginn fór ég til doksa og var þá komin með kokkaveikina (streptakokka) og var þá heima fram til fimtudags. En núna er Jón Gunnar kominn með hlaupabóluna og með hita, en Kalli er auðvitað í skólanum þannig að ég þarf að taka frí örugglega þessa vikuna, eða vantar einhverjum hlaupabóluna til sín??? Hélt ekki. En já, það er víst konudagurinn í dag, Kalli fór í morgun og keypti handa mér blómvönd á leiðinni úr vinnunni þannig að ég fékk mín fyrstu konudagsblóm ævinnar, bara gaman að því , svo fékk ég líka blóm á valentínusrardaginn, en Jón Gunnar segist nú hafa keypt þau (hann valdi þau fyrir pabba sinn) og ætlar hann að gefa ömmu sinni og systur blóm líka, hún verður heppin konan hans, hann verður örugglega alltaf með blóm strákurinn  En þetta er orðið gott er það ekki, allavega ekki 2 mánuðir síðan síðasta blogg var  Iggan kveður í kvöld, með pínu ponsu hausverk
»
16.02.2008 20:50:54 / Igga77
...yfir bloggleysi, þá er nú mikið sagt  En það er auðvitað alltaf nóg að gera á þessum bæ, og reyni ég bara að stikla á stóru yfir þessa tæpa 2 mánuði sem ég hef ekki bloggað  Í dag var fermingarmessa hjá Garðari og fór ég með krakkana þangað, en það er mjög fín "messan" hjá þeim, þetta er svo frjálslegt og svo er kaffi á eftir og þá er mikið spjallað við hina foreldrana. Um síðustu helgi var Katrín Gréta að keppa í Kata og gerði hún Heyjan sjodan (kann ekkert að skrifa þetta) og var ég ótrúlega stolt af stelpunni, hún fékk 4 flögg í keppninni sem er mjög gott fyrir fyrstu keppni. Síðan fórum við líka í afmæli til Bjarna Salvars og Sigrúnar og held ég að ég hafi aldrei borðað eins mikið í afmæli hjá þeim fyrr, Bryndís gerði t.d. kjúklingarétt sem ég hef ekki borðað í nokkur ár... Þessa vikuna var Garðar Freyr í Móaflöt og náði ég þeim merka árangri að sjá í botninn á óhreinatauskörfunni, það hefur ekki gerst lengi  Ég og Kalli fórum í helgarferð til Glasgow í janúar, bara við 2 og var það fínt, verslaði mikið go aðeins meira  mér finnst svooo gaman að versla í HM og fleiri búðum, ég er ekkert mikið verslunarfrík hérna heima kannski með 1,2 eða 3 krakka með mér en þegar ég er "ein" með "burðarmann" þá er þetta mjög gaman  Við vorum búin að ákveða að fara til Danmerkur í sumar, og ætluðum við að hafa íbúðaskipti en það hentar ekki tímasetningarnar núna, þannig að við förum bara seinna, en svo er kannski planið að þegar Kalli er búinn með námið hér heima að fara kannski til DK í áframhaldandi nám, ég er bara frekar hrædd um að fara með Garðar Frey, þá er maður kominn í aðstæður sem maður þekkir ekki... En talandu um skólann hjá Kalla, þá fékk hann stundaskrá frá helvíti fyrir fjölskyldufólk, hann er í skólanum frá 8-17:40 og ég sem er með vinnutímann aðra hvora vikuna til 18:15 en er að vinna með Valdísi sem bauðst til að vera alltaf til 18 nema ef hún þyrfti að fara að gera e-ð þá vinn ég til 6, en svo þarf ég að minnka við mig vinnuna, það gengur ekki alveg að vinna svona mikið og með þetta stóra heimili, Kalli vinnur næstum allar helgar á Taxanum þannig að heimilið er ekki í alltof góðu standi alltaf.... En nú á að leita eftir auka manneskju inn á pósthúsið til okkar sem er þá frá hádegi til rúmlega 6, þá get ég hætt um kl. - eða 4 sem verður bara næs, þá er ekekrt stress með krakkana, en Katrín er í Karate og Garðar er í fótbolta (með Haukunum) og líka í sundi, þannig að þau eru á æfingum 3 daga í viku hvort. Síðan óska ég ekki eftir svona stressi aftur í kringum jólin, við vorum auðvitað nýlega flutt upp þegar vinnan varð mjög mikil, þannig að þegar ég var í fríi þá þurfti ég að leiða Jón Gunnar út um allt, t.d. þegar ég setti í þvottavélina ofl. hann var kominn með nóg af fjarveru mömmu sinnar þá... Hey já og í janúar tók Garðar þátt í Reykjanesmóti í fótbolta og náði hann að sóla 1 og næstum því að skora mark.... það hefði verið svakalegt ef hann hefði skorað, en aðstoðarþjálfarinn í hans flokki (4 flokk) er kennari í Öskjuhlíðarskóla og þekkir hann þá mjög vel og er hann (Hlynur) eitt af hans idolum, en hann er líka í laginu ho ho ho we say hey hey hey og er hann þessi hoppandi. Hvað meira?? Já, ég hef heldur ekki haft tíma fyrir mig eins og í ræktina og er ég svo búin að missa minn árangur niður aftur, en þá er bara að standa upp aftur og taka sig á, ég ætla að vera búin að missa x mikið fyrir fermingu og ég byrjaði á að taka Herbalife til að byrja með, svo er bara að fá tíma í ræktina til að styrkja sig  Á þriðjudagskvöldið s.l. var kaffihúsahittingur Williams syndrome foreldra, en við hittumst c.a. annan hvorn mánuð og er það svo fyndið hvað þau eiga mikið sameiginleg þessir krakkar, maður gæti verið t.d.að tala um Garðar þegar það er verið að tala um 5 ára stelpu, bara fyndið, enda segjum við að þau eru sálufélagar, eins og þegar Gunnhildur Sól byrjaði í Öskjuhlíðarskóla þá kynnti GF hana sem frænku sína og fannst það bara eðlilegt, var svo hissa á því að hún væri ekki frænka sín  En já, nú er maður að fara á fullt í fermingarundirbúning, búið að panta salinn og staðfesta það, panta veitingarnar en þá eru þessi 2 stóru hlutir búnir... en samt svo mikið eftir... Eníveis, er þetta ekki orðið gott?? Vonandi verður nú ekki eins langt í næstu færslu  Kveðja Iggan
»
24.12.2007 08:31:29 / Igga77
Jæja góðir hálsar, það er bara kominn aðfangadagsmorgunn, tíminn er nú fljótur að líða  En í ár sendi ég engin jólakort vegna anna hjá okkur hjónunum og vona ég að okkur sé fyrirgefið það , sem ég efast ekki um, við eigum svo góða vini  Þannig að við segjum bara: Gleðileg jól og farsælt komandi ár Jólakveðja Íris, Kalli, Garðar Freyr, Katrín Gréta og Jón Gunnar
»
03.12.2007 19:55:51 / Igga77
Já það verður nóg að gera fram til jóla, en það er frídagur hjá okkur á sunnudaginn, svo er opið alla aðra daga til jóla og byrjum við í næstu viku að hafa opið 9-20 Í dag var vægast sagt mjög mikið að gera og ráðlegg ég þeim sem eiga eftir að fara á pósthús að gera það sem fyrst, allavega á stór Hafnarfjarðarsvæðinu  Önnur mál  Í gær var mikið að gerast í félagslífi Garðars megin, okkur var boðið á 2 jólaböll og 1 jólaboð, ákváðum við að fara bara í Móaflöt, en restin af deginum fór bara í snatt hérna heima. Á laugardaginn var Katrín að syngja í Hafnarborg með kór Hvaleyrarskóla og var þetta rosa fallegt hjá þeim. Um síðustu helgi fór ég með vinnunni á jólahlaðborð og aðeins í bæinn á eftir, var nú ekki komin heim fyrr en um 2;30 sem er óvenju gott hjá mér þ.e. að vera úti svona lengi.... En vitiði, er búin á því eftir daginn, nenni ekki að blogga meira, er eöð svo andlaus, búin að gera helling en ekekrt að segja  Iggan segir blessbless
»
10.11.2007 23:56:30 / Igga77
Í dag fórum við mamma og Bjarney á námskeið/fyrirlestur hhjá Sölva Fannari, svo í hléinu sé ég fyrrverandi hjúkku á Skagaströnd, hjúkkuna sem var þar á meðan Garðar Freyr var sem mest veikur og áður en hann greindist með Williams syndrome,mér fannst í dag eins og hún horfði aðeins á mig/okkur eins og hún væri að bíða eftir að ég myndi heilsa henni, eins og ekkert annað væri sjálfsagðara, en mér datt það alls ekki í hug eftir framkomuna hjá þessum "fagaðila", ég var örugglega heppin að hún kallaði ekki til barnaverndarnefnd í öllu þessu, því ég var nú svo ómöguleg mamma að ég var ennþá gefandi greyið stráknum barnamat orðnum 7 mánaða gömlum. En eins og einn Williams pabbinn sagði við mig að fyrsta greining Garðars væri óhæf móðir, en þannig var framkoman hjá þessu liði á meðan ég var að reyna að fá hjálp fyrir barnið. Spáið í þessu hvað svona fólk (hjúkkan og læknar) geta brotið foreldra niður með orðum, ég var hætt að þora með barnið til læknis, bað mömmu um að fara með hann. Ég er líka handviss um að ef ég hefði ekki lent í þessu þá væri ég mun öruggari með mig, ég er örugg í vinnuni en þá er ég líka með grímu/front á mér vegna þess að ég veit hvað ég er að tala um, ekki nóg með þessa framkomu áður heldur er ég búin að lenda í þessu oftar, gleymi ekki aðstoðarlækni á bráðamóttöku Lsp þegar þurfti að brenna fyrir hjá stómíunni hans Garðars, ég spurði hvort ég mætti ekki bara fá pinna með mér heim til að gera þetta eða fara með hann á vaktina hér í Hafnarfirði, neinei hún talaði við skurðlækni á vakt svo ég heyrði og röflaði um að ég væri ekki ánægð með þeirra þjónustu og jaríjarí, nú doktorinn kíkti á mig og bað aðst.lækninn vinsamlegast um að láta mig hafa pinnana, ég hefði örugglega gert þetta oftar sjálf heldur en hún. En að öðru, við fáum íbúðina á morgun, keyptum málningu ofl í dag  Eníveis, þetta kom bara upp í kollinn á mér áðan þegar ég var að tannbursta mig og varð að koma þessu frá mér.... Igga segir blessbless.....
»
03.11.2007 18:43:39 / Igga77
Hæhæ, jú það er búið að vera mikið að gera hjá okkur undanfarið þannig að ég stikla bara á stóru Ég og Katrín Gréta fórum til Danmerkur 14-21 okt Við lentum í Kaastrup á miðvikudeginum og tókum lest þaðan til Middelfart en Jóna og Anna Margrét fóru með sömu lest þangað, sem betur fer því ég hafði aldrei farið með lest í DK og kunni ekkert á þetta system þar. Þegar við komum til Middelfart þá tókum við léttan göngutúr eftir ströndinni, fórum svo heim til mæðgnanna og þar var eldað besta lasagna sem ég hef smakkað, en það var kjúklingalasagna og bíð ég núnabara eftir uppskriftinni  Á fimtudeginum fórum við í Legoland og var það frábært, fórum í 2 rússíbana og var annar þeirra pínu skerí, en Katrín Vildi endilega fara í hann og ekki gat ég verið músin sem þorði ekki en við fórum í fulltfullt af tækjum og borðuðum við þarna þegar öllum tækjum var lokað. Á föstudeginum fórum við í Odense Zoo sem er líka fínn garður, ég hef nú aldrei verið mikil dýrakona en þetta var fínt, Katrín er reyndar svaka dýrastelpa og skemmti hún sér vel. Eftir dýragarðinn var farið að versla, ég ætlaði nú ekki að versla mikið, en þið vitið hvernig íslendingar eru í útlöndum, nú og svo var ég með stækkanlega tösku og varð auðvitað að nýta ALLT plássið í henni en meða annars þá keypti ég mér dýrustu flík sem ég hef keypt og verið keypt á mig, ég keypti kápu fyrir 18.000.- kr. en hún er mjög flott og fín og sé ég ekki eftir þessum krónum í hana, en þetta var það eina sem var keypt á mig, en fuuullt á krakkana, eða úlpur og fl. í H&M, keypti svo úlpu á Kalla en hún er of ermastutt þannig að ég held að pabbi græði bara eina úlpu  Á laugardeginum fórum við í garð í Fredericia ( held ég skrifi þetta rétt) en það er frítt í þennan garð, minnir aðeins á fjölskyldugarðinn, nema ekki peningaplokkari, við fórum á árabáta og hefði mér ekki dottið í hug að fara í svoleiðis miðað við mína reynslu en ég hafði mjög gott af þessu, tókst að yfirstíga þvílíka hræðslu og leið vel á vatninu í fyrsta skipti. Um kvöldið fórum við út að borða á Cafe Razz sem stelpunum fannst fyndið, héldu að þær fengu bara prumpuborgara en eftir matinn keyptum við okkur nammi og höfðum smá nammikvöld. Já og um morguninn fór ég að versla smá kjöt og svona, vissi reyndar ekki hvað ég mætti taka mikið til landsins af spægipylsu, skinku og hamborgarhrygg en ég var með um 5 kg og labbaði bara með það inn ´ði landið, en svo má ég víst bara taka 2 kg keypti líka rautt og hvítt í þessari búð, þá var það bara búið  En ég er líka búin að vinna eins og vitleysingur undanfarið, fer 2-3x í viku í útkeyrsluna og er þá að vinna til um 22;30 komin heim um 23, en þetta gaf vel um mánaðarmótin og er ég búin að taka 4 vakti í útkeyrslunni eftir að ég kom heim. Veitir ekki af, þarf að borga Mastercard reikninginn í desember.... Svo fáum við íbúðina uppi afhenta á þri eða mið í næstu viku, erum búin að panta parket og hurðir en versta er að parketið kemur ekki fyrr en um miðjan eða lok nóvember, þannig að kannski verðum við flutt inn og þurfum þá að gera helling, ekki gott því að við gerðum ráð fyrir þessu fyrr en svona er þetta bara stundum.... En jæja, kartöflurnar eru örugglega tilbúnar, þarf að gera mús úr þeim og steikja snitselið  Kveðja Igga
»
30.09.2007 09:55:35 / Igga77
Jæja, smá uppfærsla á lífinu hjá Holtagenginu  Á föstudagskvöldið í s.l viku vorum við með matarboð, en Mási,Ray og Sjun ( kann ekki að stafa nafnið hennar ) komu í mat og ætluðum við síðan að kíja á smá djamm, en uppúr miðnætti sagði ég við Kalla að annaðhvort yrðum við að fara strax í bæinn eða ég myndi bráðum fara að sofa, og það varð úr að þau fóru um 1 leitið og ég við hjónin inn að sofa, vorum barnlaus nota bene, erum algjörlega ónýt í djammi  Á laugardeginum fórum við í réttir, en ég ætlaði að fara með Bjarney í göngurnar en það breyttist, nennti ekki að fara á fætur um 7 leitið af því ég ætlaði á djamm, en ótrúlegt að þegar maður er barnlaus þá vöknuðum við um 7- 7:30 um morguninn, en þegar við erum með krakkana þá vildi maður geta sofið lengur  Við vorum ekki mjög lengi við réttirnar en þeim (Ray og frú fannst þetta stórmerkilegt og vorum hissa á að þetta væru bara hobbýbændur... Við kíktum líka á hverasvæðið hjá Krísuvík og þangað hef ég aldrei komið, búin að búa í Hafnarfirði í 12 ár og er ekki nema um hálftíma kannski að keyra þangað. Um kvöldið buðu þau okkur síðan út að borða á Dong Huang sem er kínastaður hér í Firðinum. Á sunnudeginum fórum við með þau á Gullfoss og Geysi og var það heví kalt og mikið rok, elduðum síðan um kvöldið hangikjöt með hvítri sósu, kartöflum og meðlæti, svaka gott  Mánudagurinn var nú bara venjulegur  Á þriðjudaginn og miðvikudaginn fór ég í útkeyrsluna hjá póstinum og var þá að vinna frá 8:30-22:45 og var ég orðin frekar þreytt eftir það, en ég lít bara á þetta sem gjaldeyri fyrir okkur Katrínu, og ætla ég að tékka á því hvort ég fái kannski að keyra 2 kvöld í viku meðan það vantar fólk.... Á fimtudaginn fórum við Kalli á foreldrafund í sambandi við ferminguna hans Garðars Freys, en ég sagði við mömmu að maður gæti varla sagt lengur að maður sé svona ungur eins og maður heldur þegar það styttist í að maður láti ferma barnið sitt sem er reyndar orðinn algjör unglingur  Á föstudaginn var Jón Gunnar orðinn veikur, fékk þessa gubbupest á fim.kvöldið og hélt áfram á fös, þannig að ég fékk pössun fyrir hann þangað til ég fékk aðra manneskju til að leysa mig af á pósthúsinu. Síðan komu Eygló og strákarnir til okkar sem er alltof langt síðan það hefur gerst.... Í gær fórum við Bjarney í ræktina og síðan aðeins til mömmu og pabba, skrapp heim í sturtu, fór svo í bakarí og keypti eina köku en það var jú laugardagur, og í kvöldmat grillaði ég svo pizzu og svo fékk ég mér nammi um kvöldið, en þetta var jú laugardagur og þá leyfi ég mér að sukka, svo er bara að byrja að taka á því aftur, hef ekki verið nógu dugleg og búin að þyngjast um nokkur kg í sumar, en ég er núna byrjuð aftur  Iggan kveður í dag 
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
Dagsetning
9. febrúar 2012
Talning
Fyrir 1386 dögum
Garðar Freyr fermist
Heimsóknir
Í dag: 7 Alls: 48382
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 23 september
|